29febrúar
Menn eru ekki mikið að standa sig í þessu dæmi hérna, man nú bara þá gömlu góðu daga að rifist var um að fá að blogga.....Good times
Ég ætla bara minna menn á badd í kvöld sem Verið góða (in leimens törms Ölver) mun elta og mun þetta byrja klukkan 19:20 sharp sem fyrir ykkur áhugamennina þýðir tímanlega! En eins og menn vita er þetta síðasta æfing okkar Ómars fyrir úrslitakeppnina sem hefst á morgun og mun enda sama dag eða klukkutíma seinna, herlegheitin byrja klukkan 13:20 og mun Eyþór leiftur og Ómar Hamar sem jafnframt er fyrirliði liðsins takast á við Fonsa ehf, Fonsi ehf inniheldur tvo frábæra leikmenn se eru reynsluboltar af guðs náð og munu leikar verða erfiðir en með dass af sjálfsöryggi, vilja og baráttu gætum við jarðað þessa gaura.....
Áfram Drengir.........
Kveð í bili,
Formaður Eyþór
06nóvember
Núna er loksinns komið að þessu úrslitin verða kynnt frá bjórsmökkunarkeppni laugardags.
Keppnin var milli Eyþórs Formanns, Ómars Varaformanns og Þorvaldar (blúsbróðurs)
5 bjórtegundir voru settar í keppnina og hver maður fékk sinn eigin miða í hendurnar með krossa spurningum og virkaði það þannig þegar ein af bjórtegundunum voru smakkaðar áttu þeir að krossa í reit á blaði við hlið bjórsinns sem þeir héldu að væri í glasinu, allir fengu sömu tegund í sitt glas hverju sinni. Mátti þá aðeins krossa við hverja bjórtegund einu sinni í gegnum alla keppnina (ef þú skilur þetta ekki þá finnst mér það ekkert skrítið ég skil þetta ekki heldur)
Þetta byrjaði allt að ég skellti Faxe í glösin og á meðan þeir voru að rista bjórinn og þefa á milli sopa rituðu drengirnir á blað hvaða bjór var talinn vera réttur og viti menn eini maðurinn sem var með rétt svar var Formaðurinn sjálfur Eyþór.
Næst var Víking og tek ég fram að allir sögðu þeir að þetta væri pottþétt en viti menn með alla þessa reynslu á bakinu var aðeins einn maður með þetta rétt og aftur var það Formaðurinn Eyþór.
Tekinn var þá einnaf vinsælustu bjórunum sem yfirleitt er drukkið, Carlsberginn góði ég vill samt ekki ræða mikið um þessa tegund þar sem enginn var með rétt svar.
Kom þá Corona á borðstólana sem ég vill bæta við að allir héldu að yrðu með rétt svar þar sem að hann er með frekar sérstakt og ferskt bragð þarf ég að taka fram að aðeins einn maður var með þetta rétt og er hann corona maður mikill, já þetta er rétt hjá ykkur Varaformaðurinn Ómar
Heinkeken Var síðastur og er hann ekki mikið drukkinn hjá okkur klúbb meðlimum en drukinn þó svo menn þekkja hann og aðeins einn maður var með rétt svar við þessu hann heitir Ómar og er væntanlega Varaformaðurinn
Ég þarf væntanlega ekki að segja ykkur að Þorvaldur var ekki með eitt rétt svar í allri keppnini enda ekki í miklu formi þessa dagana og hvet ég drenginn til að smakka sem mest í framtíðinni
Ef þið hafið Talið rétt Er jafnt milli Eyþórs og Ómars og vildi það svo heppilega til að við vorum með 3 aðrar tegundir í boði voru það Tuborg, Lite og Thule og smökkuðu þeir þann mjöð með miklum áhuga og útsjónarsemi og viti menn þetta endaði með jafntefli milli félaga svo þeir fengu báðir verðlaun, 1 kippa af bjór af eigin vali fyrir að vera bjórsmökkunar meistarar ársinns 2007.
vill ég samt taka það fram að reglurnar voru ekki með bestu móti og verður þeim breytt lauslega fyrir næstu keppni og þakka ég þar með fyrir mig
K.v Maðkurinn (Davíð)
29október
Halló góðu og tryggu lesendur Davíð heiti ég og er hinn nýji limur þessa ágæta vínsmökkunarklúbbs.
Mun ég ætla hafa mitt fyrsta blogg stutt, létt og lipurt. Í þessu bloggi mun ég eingöngu tilkynna Drengjunum að á laugardaginn 3. nóvember verður vínsmökkun af bestu gerð heima hjá mér og Eyþóri formanni með léttu leikja gamni og vínsmökkun. Þessi smökkun verður lengi í minnum manna höfð þar sem keppni verður tekin í smökkun og athugað hver af drengjunum hefur fylgst best með bragði hvers drykkjar í gegnum tíðina.
Stjórnandi verður Davíð og mun ég sjá um að keppnin verði lögleg og svindllaus, úrslitin verða síðan tilkynnt eftir helgi.
Ég þakka fyrir mig.
k.v Maðkurinn
24október
AÐVÖRUN
AÐVÖRUN
AÐVÖRUN
Lögreglan vill hvetja karlmenn, einkum þá sem stunda næturlíf, ráðstefnur, jólahlaðborð, vinnustaðasukk og knæpur, til að vera vel á verði og afar varkára þegar kvenfólk býður upp á drykk.
Komið er á markaðinn stórhættulegt efni, svonefndur "bjór" og er fjöldi kvenna farinn að nota efnið til þess að herja á menn sem eiga sér einskis ills von.
Venjulega er efnið í fljótandi formi og fæst nú næstum hvar sem er.
Það er til á flöskum, dósum, úr krana og jafnvel í stórum kútum.
Kvensniftirnar nota "bjór" í samkvæmum og á börum til þess að véla karlkyns fórnarlömb heim með sér og í bólið.
Venjulega nægir konunni að fá karlmanninn til að innbyrða nokkrar einingar "bjórs"og bjóða honum síðan heim til kynlífs án nokkurra skuldbindinga.
Þessar aðfarir duga til þess að gera karlmenn gersamlega bjargarlausa.
Eftir neyslu margra "bjóra" kemur iðulega fyrir að menn falla í þá freistni að stunda kynlíf með kvenfólki sem þeir að öllu jöfnu myndu aldrei líta á.
Að lokinni "bjórdrykkju" vakna karlmenn oft án þess að muna glöggt hvað gerðist nákvæmlega kvöldið áður, gjarna þó með sterkt hugboð um að eitthvað slæmt hafi átt sér stað. Stundum kemur það fyrir að þessir ólánsmenn eru dregnir inn í þekkta svikamyllu sem kallast "samband."
Vitað er um tilfelli þar sem kvenfólki hefur tekist að hneppa karlmenn í langvarandi og alvarlega útgáfu þrældóms, refsinga og niðurlægingar sem kallast "hjónaband". Að því er virðist eru karlmenn líklegri til að verða fórnarlömb þessarar svikamyllu eftir að kvenmaðurinn er búinn er að neyða í þá "bjór" og lofa kynlífi.
Vinsamlegast sendið þessa aðvörun til allra karlmanna sem þið þekkið.
Ef þið eruð þegar fórnarlömb þessa hræðilega nýja efnis, "bjórs", og kvenþrjótanna sem beita því er rétt að benda á sérstaka stuðningshópa karlmanna sem búið er að koma á fót á flestum þéttbýlisstöðum, en í þessum hópum má ræða sín vandamál á opinskáan og ærlegan hátt við karla sem margir hverjir hafa lent í þessum hremmingum. Finna má þessa stuðningshópa í símaskrá víðast hvar undir heitinu ...... Golfklúbbur.
Kveðja,
Formaðurinn
19október
Nýjar myndir og geðveiki á klúbbnum.
Settum inn vel valdar myndir af okkur drengjum á mallorca meðan við smökkuðum á góðum og köldum mjeði, alls ekki tapa ykkur stúlkur þótt við drengir séum fáklæddir á mörgum þeirra.
Að öðru, vínsmökkunarklúbburinn hefur ákveðið að taka smá bolta á laugardaginn þ.e.a.s Villareal - Barcelona og Espanyol - Real madrid og mun fyrri leikur byrja um 18 hundruð, ekki má gleyma því að nýr limur er genginn í klúbbinn og mun Bjarki Halls þurfa að vera viðstaddur og gera það sem honum EINUM er lagið!!
Við kveðjum,
Eyþór formaður, Ómar varaformaður og maðkurinn
16október
Góðan og blessaðan góðir hálsar.
Margt hefur gengið á í herbúðum drengjanna frá því síðast eins og Mallorca, ferðin samanstóð af Mér, Ómari og hans bróður Antoni, þessi ferð var bara ekkert annað en hiti, ef það var ekki sólin þá voru það gólftuskur að spóka sig á ströndinni á G-strengnum einum klæða sem gerði dvöl okkar drengja frekar vandræðalega því við þurftum að eyða mestum tíma í sjónum því að ef að við hefðum legið á ströndinni hefði fólk haldið að litlir skátar væru að tjalda þar!
Annars var bara drullugaman......
Set inn vel valdar myndir úr ferðinni innan skamms.
Nýr meðlimur hefur verið vígður inn í vínsmökkunarklúbbinn og er nafn hans Davíð, þetta mun vera bróðir minn og helst til mikill vín unnandi og gæðablóð, ritað verður um drenginn og mun það koma inn von bráðar ásamt mynd af honum fyrir ykkur stúlkur, það er allt gert fyrir ykkur!
Ný könnun líka.
Þetta mun ekki vera meira í bili eða þetta árið.
Kveðja
Eyþór formaður
19júlí
Ég er með þykkasta og feitasta BONER fyrir mallorca og hann er ekkert að fara fyrr en við fljúgum út!
Kveðja,
Heví Þrútinn Eyþór.
07júlí
Ómar er sá drengur sem að landaði sínum fyrsta almennilega í gærkvöld, það þýðir að drengurinn er kominn með kvóta loksins.
En allir vita að ég og Bjarki erum með kvóta og laglegur er hann hjá mér og ekki síðri hjá Bjarka en nóg um það, ég ætlaði bara að óska Ómari til hamingju.
Kveðja, Sjávarútvegsráðherra
09júní
Ég ætla að opna bar fyrir Goþþara og skíra hann scar bar.
Hugmyndin kviknaði þegar Ómar var að segja mér að það væri svo mikið af ungu goþþ liði sem hann las um eitthvað í mogganum þannig að ég held að þessi staður verði mjög eftirsóttur eftir 3-5 ár.
Það verður tequila, salt og sítróna á tilboði alla mánudaga og munu fylgja rakvélablöð með því ef fólk vill nú rispa sig....
Svo væri nokkuð töff að setja álpappír í alla glugga og hafa ekkert ljós nema bara rauð og svört kerti.
Scar bar drykkurinn verður bloody mary(með ekta túrblóði úr maríum) og þar væri nál og blek að fylgja þannig að fólk geti nú húðflúrað sig sjálft eða bara hvort annað.
Ég held líka að það væri gott að vera með andlitsliti til sölu, annars er þetta allt bara á frumstigi núna og algjör óþarfi að drífa þetta eitthvað áfram eins og er, samt er maður ekki að sjá neinn svona stað neinsstaðar og Goþþararnir vita ekkert hvar þeir eiga að hanga og eru að tala um að undirgöngin í hamraborg og strætóskýlin orðin frekar þreytt.
Ég læt vita hvenær opnunarpartýið verður og er orðið ljóst að menn verða að fara að kaupa sér matrix frakka og láta gata á sér smettið en ég er hættur í bili,
PÍS ÁT
Eyþór Goþþari
11apríl
Einn stórgóður drengur og vinur á afmæli í dag og óska ég honum innilega til hamingju með þennan áfanga.
Þessi piltur mun vera Ómar nokkur Ström og er hann 26 ára, ekki er það nú af verri endanum.
Kveðja, Eyþór